21 December, 2014

Æfingar til að halda sér við í jólafríinu, muna eftir frídögum líka

4-5 sinnum út að hlaupa í 20-40 mín í senn á rólegum hraða.

Eftir hlaup er sniðugt að taka :

Armbeygjur
Plankaæfingar 30 sek á hverjum stað
mjaðmaréttur
kálfalyftur
liðleiksæfingar fyrir mjóbak
Framstig/afturstig/hliðarstig án lóða

Svo er alltaf hægt að vinna í tækniatriðum með bolta útá velli ef aðstæður leyfa.

Þeir sem hafa verið frá vegna meiðsla geta tekið það sem sjúkraþjálfari leggur fyrir auk þess að taka hlaupin en mega gjarnan bæta hraðabreytingum inní þau hlaup og getur verið gott að taka það útá velli.

Munið að taka ykkur frídaga( t,d æfa einn dag og svo taka tvo í hvíld) því þá komið þið ferskari tilbaka úr jólafríinu. Æfingarnar hér að ofan eiga bara að halda ykkur við því ákefðin eykst svo þegar æfingar byrja aftur.

Eigið þið og fjölskyldur ykkar gleðileg jól og farsælt komandi ár

Þjálfarar

No comments:

Post a Comment

Note: Only a member of this blog may post a comment.