04 September, 2014

Næsta æfing og skráningar fyrir veturinn.

Næsta æfing hjá ÖLLUM flokknum er á laugardag kl 12:00.
___________________________________________________________
Skráningar fyrir nýja tímabilið sem er að fara af stað, eru byrjaðar. Skrá þarf í gegnum „Mínar síður“ á vef Hafnarfjarðarbæjar en það er eina leiðin til þess að nýta niðurgreiðsluna frá Hafnarfjarðarbæ. Hægt er að nálgast skráninguna inni á http://haukar.is/ (stór rauður gluggi til hægri á síðunni „Skráning og greiðsla æfingagjalda – Mínar síður“) eða á http://www.hafnarfjordur.is/minar-sidur/. Viljum við hvetja forráðamenn til þess að skrá iðkendur inn sem fyrst og fullnýta þannig niðurgreiðsluna frá Hafnarfjarðarbæ. Ef eitthvað er óljóst eða ef ykkur vantar aðstoð á einhvern hátt, þá endilega hafið samband við Bryndisi, bryndis@haukar.is eða í síma 525-8702 og hún aðstoðar ykkur.

Eigið góðan dag og áfram Haukar

kv Bryndís Sigurðardóttir

Barna og Unglingasvið

No comments:

Post a Comment

Note: Only a member of this blog may post a comment.