08 June, 2013

LAUGARVATN 15-17.júní

Komið þið sæl

Nú er komið að æfingarferð á Laugarvatn

Farið verður af stað frá Ásvöllum kl. 13 laugardaginn 15 júní og komið tilbaka

mánudaginn 17. Júni kl. 13.30

Kostnaður við ferðina er 20.000 kr og miðast þetta verð við að sem flestir mæti.

Innifalið er matur ( morgunmatur, hádegismatur og kvöldmatur), æfingagjöld og 2 sundferðir og rúta fram og tilbaka. Við ætlum að kaupa banana og skyr til að hafa sem aukabita en gott fyrir þá sem vilja eitthvað meira til að brenna að taka með sér nesti að heiman. Einnig er hægt að fara í búðina á laugarvatn.

Ef ekki verður nægjanleg mæting verðum við að skera niður rútuferð heim og foreldrar sækja.

Staðfesta á ferðina og greiða inn á reikning 0318-13-110000 og kennitala 240765-4549

fyrir miðvikudaginn 12. Júní.


Bestu kveðjur

Þjálfarar og foreldrastjórn

No comments:

Post a Comment

Note: Only a member of this blog may post a comment.