08 May, 2012
Lesa allan texta vel
Það er frí frá æfingum í dag ( þriðjudag) og er tilvalið að hvíla skrokkinn. Það verður dómaranámskeið,sem veitir ykkar aðgang að öllum leikjum í sumar, í dag kl 16:00 í stóra húsinu og býðst ykkur öllum að fara á það.
Á morgunn er æfing kl 18:30 en þeir sem ætla spila á fótboltamótinu geta fengið frí (löglega afsakaðir) á æfingu ef þeir vilja spila á mótinu. Við þjálfarar viljum hinsvegar byðja ykkur um að fara varlega á mótinu ( þið sem takið þátt) því það styttist í Íslandsmót. Munið að láta vita ef þið ætlið á mótið í stað æfingar.
Á sunnudag (takið daginn frá) munum við fara á Selfoss með bæði lið og spila síðustu æfingaleiki fyrir íslandsmót, eftir leikina mun hópurinn fara í sund og enda daginn á því að borða saman eða jafnvel fara í bíó. Meira um það á fimmtudag.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment
Note: Only a member of this blog may post a comment.