25 April, 2012

Frá foreldrastjórn

Helgina 5.-6. maí næstkomandi verður Dominos mót Hauka haldið á Ásvöllum fyrir 4 fl. kvenna. 3ja flokki karla býðst að sjá um dómgæslu, sjoppusölu og annað tilfallandi fyrir mótið í fjáröflun. Föst upphæð mun koma í tekjur og dreifist hún á þá drengi sem vinna við mótið. Strákarnir sem skrá sig í vinnu verða að vera reiðubúnir að vinna alla helgina (frá 08:00 til 18:00 á laugardegi og frá 09:00 til 16:00 á sunnudegi). Þeirra verkefni felst fyrst og fremst í dómgæslu og að selja í sjoppunni. Fyrir hvern dreng verður foreldri að taka þátt og vinna í 2-3 klst, því það þarf alltaf einhver fullorðinn að vera með strákunum í sjoppunni. Síðan þarf að deila út pizzum til leikmanna og þá þurfa fullorðnir líka að koma að því. Við óskum eftir því að þeir sem hafa áhuga á þessari vinnu, drengirnir og foreldrar sem ætla að taka þátt, mæti á kynningarfund mánudaginn 30. apríl næstkomandi. Nánari upplýsingar um tímasetningu síðar.

No comments:

Post a Comment

Note: Only a member of this blog may post a comment.