09 September, 2011

Frá stjórn

Föstudaginn 9 september Í DAG , kl. 17:30-20:30 og laugardaginn 10. september, kl. 10:00-14:00 verður opið hús í Haukahúsinu.

Markmið dagsins er að kynna vetrarstarfið og gefa forráðamönnum iðkenda kost á því að ganga frá greiðslu æfingagjalda.

Vöfflur og kakó (eða kaffi) verður í boði hússins. Við vonumst eftir að sjá sem flesta.

Haukar munu einnig kynna samstarfssamninga við N1 annars vegar og TM hins vegar. Það er enginn að fara að tapa á því að kynna sér afsláttarkjör þessara fyrirtækja. Við munum einnig kynna Hauka í horni.

Við hvetjum allt Haukafólk til að mæta og eiga góða stund.

No comments:

Post a Comment

Note: Only a member of this blog may post a comment.