24 March, 2011

Faxinn og föstudagur

Fyrsti leikur í Faxanum í kvöld gegn FH og enduðu leikar 1-2 fyrir FH í hörkuleik . Góðum fyrri hálfleik hjá okkur, sem hefði líklega átt að skila okkur fleiri en einu marki, var ekki fylgt nægjanlega vel eftir í þeim seinni. Að undanskildum 10-15 mínútum í þeim seinni gáfum við aðeins eftir í restina af hálfleiknum og fengum við á okkur ódýrt mark úr skyndisókn eftir að við áttum hornspyrnu. Í lokum settum við smá pressu í von um að jafna metin en þrekið var okkur ekki hliðhollt í kvöld og því fór sem fór.
Við tökum með okkur góðar 55 mín úr þessum leik og höldum áfram út frá þeim. Þolið mun koma og menn sem hafa verið mikið meiddir eru að komast í fínt ról.

Æfing á morgunn (föstudagur) kl 15:45 hjá þeim sem voru ekki að spila en kl 16:00 hjá þeim sem voru að spila.

No comments:

Post a Comment

Note: Only a member of this blog may post a comment.