18 January, 2011

Orðsending frá foreldrastjórn

Sælir strákar


Við fáum vinnu fyrir ykkur strákanna á Evrópukeppninni í futsal á Ásvöllum. Okkur vantar 8 stráka hvern dag – samtals 24 stráka. Þeir sem hafa áhuga verða að skrá sig á daga á æfingunni á morgun og verður að tekið niður nöfn og símanúmer. Strákar sem eru að fara út til Danmerkur ganga fyrir. Hver fær eitt skipti nema að það vanti á einhverja leiki.


Þetta þýðir að það þarf 8 stráka til að mæta kl: 16:00 út á Ásvelli á föstudaginn, þeir þurfa að vera til klukkan ca 21 eða þar til leik Íslands lýkur.

8 stráka til að mæta kl: 14 á laugardag og vera til ca 19:00

8 stráka til að mæta á mánudag frá 16:00 og vera til ca 21:00.



Mæting verður að vera STUNDVÍSLEG. Þeir verða að vera allan tímann. Það er ekkert innifalið þ.e. þið þurfið að koma með eigið nesti o.s.frv.


Það er áætlað að hver strákur fá 5.000 kr fyrir að vera þarna og þeir eru á kústunum og boltasækjarar, og rennur það í þeirra ferðasjóð.

No comments:

Post a Comment

Note: Only a member of this blog may post a comment.