25 December, 2010

Æfingaferð

Knattspyrnufélagið Haukar


Ferð til Arhus fyrir 3. flokk karla 2011
Vegna samvinnu við AGF hefur boðist að fara í æfingarferð til Arhus í júní 2011. Til boða stendur að fara vikuna 8-15 júní 2011 (reynt var að koma því fyrir að ferðin yrði farin að hluta á meðan EM undir 21árs liðsins væri).
Einnig hefur náðst gott verð í gistingu og annað í ferðinni en ferðatilhögun er eftirfarandi:
FI 272 G 08JUN 3 KEF - Billund 0030 0515
FI 273 G 15JUN 3 Billund - KEF 0815 0905
Gisting á Hotel Atletion sem er á æfingar- og keppnissvæði AGF + morgunmatur Verð per dreng (miðað við 35 og tvo fyldarmenn) 80.000 (hægt er að lækka þessa upphæð um kr. 6.000 með því að nota 10.000 fyrir þá sem eru með vildarVISA kort Icelandair).
Hádegismat og kvöldmat ásamt millimáltíðum á að vera hægt að fá fyrir DK 160 á dag ~ 1200 x 20,5 = ~ 25.000.
Samtals væri slík ferð þá á um kr. 105.000
Vilji menn fara í Sommerland þá kostar í Farup dagspassi DK 165 ca. kr 3.400 + rúta!
Íslenska landsliðið spilar tvo leiki á meðan á ferðinni stendur. Ekki vitum við hvað kostar inn en ættum að geta fengið KSÍ verð. Annar leikurinn er spilaður í Arhus og hinn í Álaborg.
11/6 Ísland – Hvíta Rússland (Aarhus)
14/6 Ísland – Sviss (Álaborg)
Kannski er hægt að áætla að það kosti 3-4.000 kr miðinn og ef farið yrði á báða leikina þarf að ferðast til Álaborgar og gæti þá kostnaðurinn kannski verið kr. 12.000
Þannig að ef farið væri á báða leikina og í Sommerland þá væri kannski ferðin að kosta kr. kr 125.000.
Greiða þarf hluta af fargjaldinu með Icelandair strax. Afganginn af kr. 80.000 þarf svo að borga í byrjun maí og restina þegar farið verður.

ATH Síðasti séns til að skrá sig í ferðina er 5 jan 2011 ásamt því að greiða
staðfestingargjaldið sem er 11.000 kr pr dreng og verður það að leggjast inn
á 0140-26-040964 kt:040964-2589 við skráningu .

Kær kveðja foreldrastjórn 3 fl. Hauka

No comments:

Post a Comment

Note: Only a member of this blog may post a comment.