A-leikurinn í kvöld var ekki sá fegursti hjá okkur í sumar og við gerðum kannski svolítið meira af mistökum en venjulega í kvöld og fórum auk þess illa með góð færi í leiknum. Leikurinn endaði 3-3 og kannski sanngjörn úrslit miðað við spilamennsku okkar. Búið er að vera mikið álag á okkur undanfarna daga og gerði svolítil þreyta vart við sig hjá okkur í kvöld. Leikurinn tapaðist hinsvegar ekki og fengum við stig úr honum en vissulega sárt þegar við erum yfir þegar 30 sek eru eftir og fáum á okkur mark eftir hornspyrnu. Tvö mörk á okkur í dag eftir hornspyrnur er eitthvað sem við getum lagað. Næsti leikur gegn HK og með sigri þar getum við farið á toppinn.
B-leikurinn í kvöld einkenndist af miklum líkamlegum burðum KR inga fram yfir okkar menn. Leikurinn endaði hinsvegar 1-0 fyrir Hauka og vannst hann með þéttum varnarleik og mkilli baráttu okkar manna þar sem allir lögðu sig fram. Björgvin skoraði sigurmarkið snemma í fyrri hálfleik og þar við sat. Góður sigur í Bliðum.
ÞAÐ VERÐUR FRÍ FRÁ ÆFINGUM Á MORGUNN ( ÞRIÐJUDAG) OG ÆFUM VIÐ NÆST Á MIÐVIKUDAG KL 19:15.
28 June, 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment
Note: Only a member of this blog may post a comment.