Í kvöld var fyrsti leikur í Íslandsmóti hjá A-liði er þeir mættu Skagamönnum. Eftir góða byrjun hjá okkar mönnum þar sem Guðjón( 2 mörk) og Siggi( 1 mark) settu mörkin slökuðum við á og leyfðum Skagamönnum að koma inní leikinn og þeir minnkuðu muninn með góðu skallamarki þar sem okkar menn voru sofandi á verðinum, 3-1 á hálfleik. Í seinni hálfleik var skárra að sjá til okkar manna og setti Doddi skallamark eftir að markmaður andstæðinganna hafði misst boltann frá sér. Fram að þessu höfðum við farið illa með mörg góð færi. Skagamenn sem gefast seint upp settu svo sitt annað mark í leiknum og lokatölur 4-2 fyrir Hauka.
Góð byrjun á sumrinu en við getum þó bætt okkur fyrir næsta leik á móti ÍR.
Næsta æfing er á mánudag
14 May, 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment
Note: Only a member of this blog may post a comment.