Í dag var spilað á 4 liða móti hjá HK í Fífunni. Fylkir var fyrsti andstæðingurinn og sigraðist sá leikur eftir mark frá Gunnari J og hefðu mörkin getað orðið fleiri.
Næsti leikur var gegn Aftureldingu og endaði sá leikur 0-0 eftir mikla prssu frá okkar mönnum undir lokin. Afturelding hafði byrjað leikinn betur en okkar menn girtu sig í brók og voru óheppnir að klára þann leik ekki. Síðast leikurinn var gegn HK og sigraðist hann 2-1 eftir að við höfðum spilað vel lungan af leiknum. Undir lokinn vorum við farnir að þreytast og settu HK menn á okkur mark eftir aukaspyrnu. Þeir sem skoruðu í dag voru Gunnar J, Guðjón og Aron J. Allir sem boðaðir voru fengu að spila og fer svona beint í reynslubankann. Góður sigur á sterku móti
Æfing á morgunn, mánudag, kl 20:00.
07 March, 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment
Note: Only a member of this blog may post a comment.