11 March, 2010

Góður sigur gegn FH

Í kvöld spilaði B-liðið við FH í þremur 30 mín leikjum. Lokatölur urðu 4-0 fyrir Hauka. Fínn undirbúningur var í öllum mörkunum og þau vel kláruð. Spilið hjá okkar mönnum komst hinsvegar ekki alveg á ról fyrr en í leikhluta nr. 2 en eftir það gekk boltinn ágætlega milli manna og fínt spil leit kvöldsins ljós. Markaskorarar voru Sigurgeir,Jói,Danni A og eitt sjálfsmark sem kom eftir virkilega vel útfærða sókn hjá okkur. Næsti leikur B-liðs er á mánudag gegn Stjörnunni.

Næsta æfing er á morgunn( föstudag ) kl 17:00 hjá öllum flokknum.

No comments:

Post a Comment

Note: Only a member of this blog may post a comment.