21 March, 2010

Góðir sigrar um helgina

Spilað var í báðum liðum gegn Breiðablik um helgina og unnust báðir leikirnir.

A-liðið byrjaði sinn leik ekkert sérstaklega vel ,á móti A-2 liði Breiðabliks, þar sem við létum alltof margt fara í taugarnar á okkur og boltinn fékk ekki að fljóta vel. Í seinni hálfleik var allt annað lið inná vellinum og gáfum við engin færi á okkur og gekk boltum mun betur á milli okkar. Lokatölur 5-1 og fóru auk þess fjöldamörg dauðafæri í súginn hjá okkar mönnum .Markaskorar Guðjón,Arnar A,Danni,Aron auk eins sjálfsmarks hjá blikum.

B-liðið átti ágætis dag þó að oft hafi boltinn gengið betur hjá þeim. Eftir fremur jafnan fyrri hálfleik voru það við sem fórum upp um gír og kláruðum leikinn. Vel var staðið að mörkunum og voru það Goggi,Sigurgeir,Darri og er það gjörsamlega stolið úr okkur þjálfurum hver skoraði fjórða markið en lokatölur 4-1 fyrir Hauka.


Það er svo æfing á mánudag kl 20:00 eins og vanalega.

No comments:

Post a Comment

Note: Only a member of this blog may post a comment.