21 February, 2010

6 stig í fyrsta leik í Faxanum

A-liðið hóf leik gegn Aftureldingu og eftir erfiðann fyrri hálfleik, þar sem okkur tókst illa að spila boltanum, var það Danni Arnar sem kom okkur yfir eftir laglega fyrirgjöf. Aftureldingu tókst að jafna skömmu síðar eftir að einn leikmaður þeirra var alveg ódekkaður í hornspyrnu og skallaði inn af stuttu færi ( algjört kæruleysi í dekkningu). Þrátt fyrir þetta tókst okkar mönnum að setja 2 mörk í viðbót og voru þau bæði glæsileg en það fyrra skoraði Guðjón og það seinna Alex. Góður endir á döprum leik hjá okkur og geta okkar menn mun betur. Menn fá hros fyrir að klára erfiðan leik.

B-liðið virkaði ferskt og hungrað því að snemma í fyrri hálfleik skoruðu okkar menn eftir fyrirgjöf og klafs í teignum. Það sama var uppá teningnum þegar Afturelding jafnaði skömmu síðar. Við þetta settu okkar menn í fluggír og skoruðu 5 mörk til viðbótar gegn einu frá heimamönnum. Gott spil myndaðist oft á köflum og voru menn grimmir í návígjum. Markaskorarar voru Bjarki Þ,Bjarki F,Hrannar,Aron G,Oliver og Beggi.


NÆSTA ÆFING ER Á MÁNUDAG KL 20:00 Á ÁSVÖLLUM.

No comments:

Post a Comment

Note: Only a member of this blog may post a comment.