24 January, 2010

Haukasigur í rokleik

A-lið spilaði við Grindavík í gær við erfiðar aðstæður á Ásvöllum og þurftu leikmenn að hafa sig allan við til að spila góðann fótbolta í miklu roki. Í fyrri hálfleik voru við með talsverða yfirburði á vellinum og sköpuðum okkur 3-4 mjög góð færi en baráttuglaðir Grindvíkingar voru fastir fyrir og boltinn fór ekki í netið fyrr enn seint í fyrri hálfleik og var þar að verki Doddi eftir fast skot frá Stefni 1-0 í hálfleik. Miklar breytingar vour gerðar þegar leið á seinni hálfleikinn og skipti það litlu máli því að enn voru þó nokkrir yfirburðir á vellinum af okkar hálfu. Loks var það Doddi sem skoraði mark nr.2 eftir flottann sprett. Grindvíkingar minkuðu svo muninn rétt fyrir leikslok með glæsilegu langskoti. Lokatölur 2-1 fyrir Hauka.

Gamann var að sjá í leiknum hvað margir gera tilkall í byrjunarlið og heldur það mönnum vonandi á tánum fyrir komandi átök. Svo verða menn að halda einbeitingu innan sem utan vallar ef þeir ætla að bæta sig.

Næsta æfing er á manudag kl 8.

No comments:

Post a Comment

Note: Only a member of this blog may post a comment.