14 December, 2009

Góður sigur B-liðs

B-liðið spilaði gegn Þrótti Reykjavík á laugardag og var þetta síðasti leikur fyrir jól hjá þeim. Leikurinn var leikinn við erfiðar aðstæður þar sem rigning og rok settu svip sinn á leikinn. Spil okkar manna var á parinu eins og segir í golfinu og setti þar vindurinn strik í reikningin hjá báðum liðum. Ánægður var ég með þær hugmyndir sem menn voru að reyna að framkvæma og er erfitt að að vera óánægður þegar menn eru að reyna að gera réttu hlutina. Darri kom okkar mönnum á bragðið strax í byrjun leiks og vorum við ógnandi eftir það. Þróttarar sóttu í sig veðrið þegar leið á hálfleikinn og náðu að setja eitt mark. Svo voru það Aron Guðmunds og Sigurgeir sem komu okkur í 3-1 og var staðan þannig í hálfleik. í seinni hálfleik komu menn af bekknum og stóðu sig mjög vel og skipti engu hverjir komu inná því leikurinn hjá okkur var áfram góður. Alexander sem er að koma úr meiðslum setti svo 2 mörk í seinni hálfleik og þar af eitt úr aukaspyrnu beint í hornið ( flott mark). Þróttarar settu svo 2 í lokin og lokatölur 5-3 fyrir Hauka og fengu allir sem voru boðaðir að spila.
Gaman var að sjá að breiddin hjá okkur er góð og áttu flestir sem boðaðir voru erindi í byrjunarlið og er ljóst að samkeppni er um stöður í liðinu .

No comments:

Post a Comment

Note: Only a member of this blog may post a comment.