A-lið gegn Leikni: Ágætis leikur hjá A-liði þar sem við mættum spræku liði Leiknis á vellinum þeirra. Ákafinn hjá liðinu var mikill og varnarvinnan góð, talað var um að vinna alla fyrstu bolta og bolta nr.2 og halda boltanum innan liðsins sem gekk nokkuð vel . Við gáfum lítið færi á okkur vegna góðrar varnarvinnu og hversu vel við héldum boltanum enn í þau skipti sem menn voru að taka aðeins of margar snertingar á eigin vallarhelmingi þá var sprækur framherji Leiknis hættulegur. Lokatölur 4-1 fyrir Hauka og skoraði Doddi 3 mörk og Gunnar Jökull eitt mark. Fjölmörgum dauðfærum hjá okkur var sóað og hefði nýtingin á þeim mátt vera betri enn vissulega jákvætt að vera að skapa sér mikið.
B-lið gegn Leikni: Við fengum á okkur 2 mörk á fyrstu mínútu leiksins og voru menn ekki alveg mættir til leiks. (Við megum ekki missa boltann á okkar vallarhelmingi og þá sérstaklega ekki fyrir miðju vallarins). Eftir þetta fórum við að spila vel og boltinn var að ganga vel á milli manna. Við vorum að færa boltann vel á milli vængja og var boltanum haldið á jörðinni. Þessi atriði skipta mestu máli. Miklir yfirburðir voru hjá okkar mönnum og vorum við með boltann mestallann leikinn og vorum að skapa góð færi. Fyrir utan klaufamistök í vörninni, þar sem Leiknir skoraði gjafamark, var seinni hálfleikurinn svipaður og voru það við sem spiluðum góðann fótbolta sem skilaði 2 góðum mörkum frá Sigurgeir og Danna. Svekkjandi tap í annars góðum fótboltaleik hjá okkur.
Reykjanesmót hjá A-liði: Mikill kraftur var í strákunum og byrjuðum við á að vinna FH sanngjarnt í fyrsta leik , næsti leikur gegn Keflavík var á pari þar sem við duttum niður um miðjann leik og gáfum smá færi á okkur. Fram að því og eftir það réðum við gangi leiks og sköpuðum okkur góð færi án þess að nýta þau og jafntefli niðurstaðan. Næsti leikur gegn Njarðvík var ágætur þar sem við sigruðum 2-0 eftir að hafa farið illa með mörg góð færi. Seinasti leikurinn var úrslitaleikur gegn HK og voru bæði lið hnífjöfn fyrir leik. Við komumst yfir snemma í leiknum og vorum að spila þéttan leik enn HK fékk ódýra aukaspyrnu sem þeir skoruðu úr og jöfnuðu. Eftir þetta sóttum við og fengum dauðafæri í lokinn þar sem boltinn fór rétt framhjá markinu. Lokastaðan 1-1 en HK vann mótið með því að skora einu marki meira en við í fyrri leikjum. Til hamingju HK . Frammistaðan okkar var nokkuð góð og voru allir að skila sínu. Allir fengu að byrja leik og allir fengu að spila. Mörkin skoruðu Danni,Doddi (2) ,Björgvin og Darri.
Stefnt er að spila einn æfingaleik í viðbót fyrir bæði lið fyrir jól og verður það líklegast lið sem er með ookur í riðli næsta sumar.
Næsta æfing á mánudag kl 20:00.
28 November, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment
Note: Only a member of this blog may post a comment.