15 November, 2009

Leikir við ÍR

Spilað var við ÍR í dag


A-liðið hefur oft átt betri dag en í dag og verður fáum orðum eytt í umfjöllun. Skemmst er frá því að segja að lítið var að ganga upp hjá okkar mönnum fyrir utan eina og eina rispu. Sendingar voru mikið að klikka og talsvert hik var í okkar aðgerðum, menn virkuðu pínu dasaðir. Menn voru að reyna enn þetta var bara einn af þessum dögum þar sem að lítið gekk upp og er gott að vera búnir með þannig leik og þá geta menn gleymt honum of einbeitt sér fyrir næsta leik. Guðjón og Gulli voru okkar skástu menn auk þess sem að Arnar A átti góða spretti inn á milli. Annars voru menn að reyna eftir því sem leið á en alveg ljóst að allir eiga mikið inni. Við lærum bara af þessu og dveljum ekki við það.
Lokatölur 3-3 gegn fínu ÍR liði þar sem við komumst í 3-1 á tímabili. Markaskorarar voru Krissi,Doddi og Guðjón.


B-liðið spilaði ágætis leik og þá sérstaklega í fyrri hálfleik þar sem boltinn gekk vel á milli og menn notuðu fáar snertingar. Við skoruðum 2 góð mörk í fyrri hálfleik og skoruðu Jói og Sigurgeir mörkin en ÍR-ingar skoruðu svo mark beint úr hornspyrnu ( klaufalegt, en taka skal fram að Danni markmaður var meiddur). Í seinni hálfleik duttum við aðeins neðar á völlinn og leyfðum ÍR-ingum að vera meira með boltann. Þeir gengu á lagið og skoruðu 2 mörk sem voru reyndar fullódýr að mínu mati en svoleiðis mörk telja líka. Við sóttum mikið í lok seinni hálfleiks og flott spil hjá okkur skapaði 3 dauðafæri í lokin en markmaður ÍR-inga varði vel og 3-2 tap staðreynd. Hinsvegar vorum við að spila ágætlega og skapa okkur fullt af færum og það var ég ánægður með.


Æfing á morgunn( mánudag) kl 20:00 og svo verður verkefni á miðvikudag fyrir hluta af hópnum.

No comments:

Post a Comment

Note: Only a member of this blog may post a comment.