15 October, 2009

Sigur og tap í fyrsta æfingaleik

Yngra árið byrjaði sinn leik vel í kvöld og hélt boltanum vel innan liðsins án þess þó að skapa sér mikið um færi . Það var svo þegar líða tók á hálfleikinn á Sigurgeir skoraði eftir ágætis einleik. Liðið slakaði aðeins á í lok fyrri hálfleiks og byrjun seinni hálfleiks ( þó að gangi vel inná vellinum má aldrei slaka og við gerðum það ). Grótta jafnaði leikinn sanngjarnt eftir að við slökuðum á en Hrannar skoraði svo glæsimark í seinni hálfleik og kom okkur í 1-2. Grótta átti hinsvegar lokaorðin og setti 2 mörk fyrir lokaflautið. Ágætis spilamennska á vellinum og menn að leggja sig fram , en við lærum af þessum leik að það má aldrei slaka á.


Eldra árið hafði mikla yfirburði í sínum leik inná vellinum frá fyrstu mínútu til seinustu. Grótta missti mann útaf í fyrri hálfleik og það gerðum við einnig
( Stefnir) , munurinn var sá að við vorum með 1 varamann en þeir ekki og því léku þeir einum færri eftir það. Við spiluðum boltanum vel á milli en eigum klárlega eftir að setja meiri hraða í það eftir því sem líður á. Nóg fengum við af færum en aðeins einu sinni fór boltinn inn og 0-1 sigur staðreynd en það var Arnar A sem skorði eftir góða sókn. Gróttumenn með gott lið og gáfu okkur hörkuleik en óheppnir með að missa sinn mann útaf og skipti það miklu í þeirra leik.


Næsta æfing er föstudagur kl 18:45 í Hraunvallaskóla ( muna eftir nesti).

No comments:

Post a Comment

Note: Only a member of this blog may post a comment.