A-lið: Það voru 11 strákar sem spiluðu fyrir hönd A-liðs í dag gegn Stjörnunni en mikið vantaði í okkar hóp sökum meiðsla,sumarbústaðarferða og veikinda í vetrarfríinu. En við erum með góða breidd og það voru flottir strákar sem spiluðu leikinn of var gaman að sjá stráka koma aftur inní hópinn eftir veikindi og ná að spila heilann leik. Ágætis spil var á köflum hjá okkar mönnum og strákarnir virkilega að reyna að spila góðann fótbolta. Stjörnumenn skoru 2 mörk í leiknum og voru mörkin í ódýrari kantinum því að um mjög jafnann leik var að ræða. Stjörnumenn með fínt lið og góðir leikmenn þar á ferð og var gott að fá leik við þá. Lokatölur 2-0 fyrir Stjörnuna
B-lið : Mikið vantaði líka í B-liðið hjá okkur en það voru 11 flottir strákar sem spiluðu leikinn gegn sterku sjörnuliði. Stjarnan byrjaði betur og var yfir 1-2 í hálfleik. Okkar strákar tóku vel við sér í seinni hálfleik og létu boltann ganga betur og oft myndaðist gott spil milli manna. Við unnum seinni hálfleikinn 3-2 og endaði leikurinn 4-4 í skemmtilegum leik þar sem okkar menn lögðu sig fram og voru félaginu til sóma. Aron Guðmunds skoraði fallegt mark og Sigurgeir setti svo þrjú mörk í seinni hálfleið , flott hjá þeim. Annars var vel staðið að undirbúning markanna og skilaði liðsheildin sér vel í þeim öllum.
Næsta æfing er á mánudag kl 20:00 á Ásvöllum.
31 October, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment
Note: Only a member of this blog may post a comment.