Þá er komið að Laugarvatnsferðinni á næstkomandi föstudag 12. júní, lagt verður af stað frá Ásvöllum við aðaldyr stórahússins klukkan 14:00 með Hópbílum hf.
Það sem þarf að hafa meðferðis er:
Nesti sem dugar fram að kvöldmat á föstudaginn.
Lak, sængurver, (eða svefnpoki) sængur eru á staðnum
Handklæði
Penni eða blýantur ( gítar ef einhver er góður að spila )
Tannbusti/tannkrem
Sundföt/handklæði
Fótboltadótið=skór,legghlífar,sokkar,stuttbuxur,bolir
Föt til skiptana
Vatnsbrúsi eða kolvetnisdrykkur til að hafa eftir hverja æfingu
Ef verður farið í það að skokka Laugarvatnshringinn (fer eftir veðri og hve dagskráin verður þétt) þá er farið yfir vatn, þurfa þeir að gera ráð fyrir því að blotna þannig að gott er að gera ráð fyrir því og hafa með sér skó og föt sem koma þá til með að koma blaut og skítug heim í poka.
Lagt verður af stað heim frá Laugarvatni klukkan 10:00 á mánudagsmorguninn 15. júní
Fyrir hönd foreldrastjórnar, Hugrún Árnadóttir
Sími 893-7677
11 June, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment
Note: Only a member of this blog may post a comment.